|
|
15.12.2008 11:59:44 / kristel1
Hæhæ allir saman !!!!!!
Loksins afrekaði ég að skrifa hérna inn á þessa blessuðu síðu hjá mér. Ég hef verið að gera margt og mikið..... Fór á ball um helgina með Stuðmönnum 2 semsagt Jónsi er að syngja og einhver stelpa og ég held að það hafi verið 2 úr stuðmönnum sem voru í hljómsveitinni um helgina. Það var ekkert smá gaman á þessu balli ég dansaði svo mikið og endaði á því að missa röddina hehe. Ég fékk að vita það frá þremur karlmönnum að ég væri getnaðarleg hehe bara fyndið. Síðan eftir ballið var haldið í eithvað partý sem var bara helvíti skemmtilegt, spilað á gítar og sungið og drukkið náttúrulega hehe. Mín kom heim um 7 um morguninn hehe hef ekki gert það lengi . Sunnudagurinn var ekki jafn góður og var það ekki vegna mikillar þinnku heldur út þessari helvítis löpp eða frekar þessum andskotans ökla maður má ekkert gera og þá er hann ónítur og er enn ónítur (væri bara best að láta taka hann af væri örugglega betra). Núna erum við mæðgur heima daman með í eyrunum og með hitamollu aftur hún var nefla lasin í síðustu viku og vorum við mikið heima þá og er ég að verða komin með nóg því að ég er nýbúin að vera í burtu úr vinnu í 2 vikur vegna aðgerðar sem ég fór í. Ég verð ekki með dömuna á aðfangadag því miður, hún verður hjá pabba sínum bæði jól og áramót og verður það samt örugglega bara gaman hjá henni efast ekki um það. Við förum suður á annan í jólum og í skírn hjá yan sólvin litla frænda 27 des og ég hlakka ekkert smá að fá að sjá hann loksins og hana frænku mína með lítið barn hehe, þau búa nefla í Frakklandi. Við verðum síðan öll á Bifröst hjá Jóa og Hafdísi um áramótin og rosalega verður það gaman enda bara fífl þessi fjölskylda haha . Jæja ekki meira í bili þangað til næst kv kristel
»
27.09.2008 00:22:44 / kristel1
Hæhæ Hún Sunna Klukkaði mig þannig að ég verð nú að standa mig hérna hehe
Víst að Jóhanna var að hafa fyrir því að klukka mig þá verð ég víst að svara 
4 störf sem ég hef unnið: ó bara 4??? -Leikskólinn tjarnarland -Skúringar -hárhöllin -skútuklöpp
4 uppáhaldsmyndir: ó þetta er erfitt.... engin uppáhalds nema auðvitað.... -Liarliar -Note book -sex and the sity the movie -Ace Ventura 1 og 2 hehe
4 staðir sem ég hef búið á: -Stöðvarfjörður -Reykjavík -Grindavík -Egilsstaðir
4 uppáhalds sjónvarpsþættir: -House -One Tree Hill -friends -Næturvaktin og Dagvaktin
4 staðir heimsóttir í fríi : -Spánn -Bandaríkin (seattle) -Danmörk -England (Mancester)
4 síður fyrir utan blog.is : -Mbl.is -Visir.is -dv.is -Facebook.com
4 uppáhalds matarkyns : -Feit súkkulaðikaka (pallakaka) -Slátur -Kjúlli -Lambakjöt
4 uppáhalds bækur: - ég les bara ekki neitt -Bíbí er mjög góð -Brennd lifandi -fjórar systur í hafnarfirði -Hann var kallaður þetta þetta eru samt ekki fallegar bækur en ég les helst svona bækur.
Jæja þetta er nóg í bili en ég Klukka Lenu Dóru og Agnesi klöru kv kristel
»
01.08.2008 01:05:15 / kristel1
Jæja franskir dagar eru búnir og váááááá hvað þeir voru magnaðir . Mikið djammað og mikið stuð. Nú er næsta stuð frammundan og það eru Akureyri um verslunarmannahelgina og það verður svakalegt stuð. Við ætlum að tjalda og reyna að vera mörg saman í hóp. Svo allir sem eru að vesenast með hvert á að fara mæli ég með akureyri og koma svo á tjaldsvæðið hjá okkur . Jæja ekki meira í bili nema það að daman mín kemur loksins eftir versló og guð hvað ég hlakka til. Góða skemmtun um versló kv kristel
»
28.05.2008 14:11:15 / kristel1
Vá hvað það er búið að vera gott veður undanfarið, ég er búin að geta notið þessa góða veðurs aðeins. Ég er semsagt búin að vera lasin í næstum 2 vikur með bronkeitis, eyrnabólgu og á sýklalyfjum og sterum til að reyna að lækna mig. Það hefur aftur á móti voðalega lítið læknað mig því miður. Við mæðgur erum búnar að vera á stf á meðan ég hef verið lasin og er það búið að vera voðalega notalegt að láta stjana við sig. Amma Jórunn, Amma í stöð, Jói, Hafdís, Natalía og Dagbjartur komu síðan yfir helgina og var verið að planta. Það gekk mjög vel og voru þau bara í 4 tíma að því. Ég aftur á móti var inní stöð hjá ömmu að aðstoða hana við matinn og hafa það rólega og reyna að ná þessu úr mér. Mér reyndar leið pínu illa yfir því hvað hún langamma mín er hress, þessi elska fer að verða 93 ára og fór út að labba á morgnanna og labbaði örugglega alveg 1 kílómeter. Ég aftur á móti sat inni og horfði á hana í göngunni inni. Meiri auminginn sem maður er að láta langömmu sína vera hressari en maður sjálfur uss. Ég dáist af henni og ætla að vona að maður verði svona hress ef maður nær þessum aldri. Hún gerir alltaf æfingar upp í rúmi á morgnanna, tekur lýsi, drekkur fjallagrasaengiferjate og hafragraut á morgnanna. Mér þykir svo vænt um þessa elsku. En annars keyrði ég á ball upp í egs í valaskjálf á laugardaginn. Ég reyndar fór ekki inn á ballið sat bara í bílnum og fylgdist með fulla fólkinu sem var mjög gaman. Margt skemmtilegt að sjá þegar fólk er fullt og maður sjálfur edrú, það voru auðvitað einhver slagsmál og stelpur dettandi í stuttum pilsum og pilsin upp um allt hehe . Planið fyrir sjómannadaginn er sko að skella sér á ball á eskifjörð með í svörtum fötum eða vonandi ef maður verður orðinn ágætlega hress. Það er reyndar eins gott að ég verði það því að daman fer með pabba sínum suður á föstudaginn og ég verð barnlaus framm á fimmtudag. Þvílíkur lúxus er þetta hjá manni alltaf . Annars er ég bara að bíða spennt eftir að simba kisan mín fari að koma þessum kettlingum út, því að hún er komin á tíma og ég er bara að deyja úr spenningi yfir þessu. Það er allt klárt fyrir komu kettlingana. Svo amma gamla bíður bara spennt hehe Jæja ekki meira í bili kv kristel næstum amma
»
22.03.2008 00:05:47 / kristel1
Sæl beibí Ég er á leið á djammið  það verður gaman!!!!! Ég er núna á fásk heima hjá Arnóri og Marra að dreeeeekka. Ef þið eruð ekki á Austurlandinu góða þá komið þangað núna því ég mun sko vera viiiillt í kveld  Sannið til  Hringið í mig  Ég svara öllum sætum   -love
»
02.12.2007 12:45:24 / kristel1
Vá hvað lífið er óréttlátt. Hann Kristinn Veigar sem var 4 ára er látinn eftir að það var keyrt á hann í keflavík og maðurinn keyrði bara í burtu og er ekki enn búinn að gefa sig framm. Maður er svo reiður og lífið er svo ósanngjarnt. Hvernig getur einhver keyrt í burtu og ekki gefið sig framm, ég bara skil það ekki . Ég samhryggist fjölskyldunni mjög mikið og hugur minn er hjá þeim. Hann Kristinn eða Kiddi eins og hann var kallaður var mjög fjörugur og kraftmikill strákur. Hann fór 3ára gamall út í bíl og startaði bílnum hehe. Hann var líka kominn efst upp í tréð í garðinum hjá hönnu veigu þegar að pabbi kom út semsagt mjög mikill orkubolti . En mér finnst lífið ekki sanngjarnt, það eru búnir að fara núna 3 sem ég þekki á mánuði og þetta er bara ekki réttlátt og alls ekki 4 ára gamall strákur sem átti allt lífið framm undan . kv kristel
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|